Ţriđjudagur, 27.5.2025
Frá ćttbálkarétti til heimsmyndar: Hugarfarsbreyting í Evrópu
Viđ upphaf miđalda, ţegar síđustu leifar Vestur-rómverska ríkisins voru ađ falla, hurfu ekki ađeins hersveitir og hallir heldur einnig lög. Rómarrétturinn, sem hafđi í margar aldir veitt keisurum og embćttismönnum sameiginlegt tungumál laga, var orđinn brotakenndur. Ţar sem áđur ríkti reglubundiđ kerfi međ borgararétti, eignarrétti, samningaformi og dómsvaldi tók nú viđ margbrotiđ landslag: munnlegur réttur, hefđir ćttbálka, dómţing á torgum eđa í stofum höfđingja.
Ţađ sem gerđist var í raun hrörnun hugmyndarinnar um ríki sem samfélagslega heild. Nýir konungar af germanskri ćtt voru í senn stríđsherrar og forystumenn stađbundinna ćttarvelda sem höfđu náđ víđtćkum yfirráđum. Ţeir gátu ráđiđ, en ekki endilega réttlćtt. Ţeir gátu stýrt, en vissu ekki alltaf hvernig ćtti ađ byggja upp samfélag. Í slíkum kringumstćđum stendur mađur frammi fyrir einfaldri en djúpri spurningu: hvernig skapar mađur heild úr sundurleitum hópum minni ćttarvelda, sumra hverja međ ólík, jafnvel gjörólík tungumál?
Sumir ţessara höfđingja stóđu einmitt á ţessum stađ í eigin lífi. Ţeir höfđu sigrađ en vissu ekki alveg hvađ átti ađ koma nćst. Og ţá kom ţađ fyrir ađ ţeir höfđu viđ hliđ sér konu eiginkonu, gjarnan af öđrum uppruna. Konu sem hafđi alist upp viđ fastari ramma, međ siđferđisviđmiđ, lćsi og hugsun sem náđi út fyrir núverandi völd og vald. Hún hafđi séđ heim sem ekki byggđist á valdi einu, heldur á reglu og hugsun um ábyrgđ og samvitund.
Og ţá fór eitthvađ ađ gerast. Ekki í hallarveislum, heldur í samtölum milli tveggja einstaklinga. Kóngurinn međ vald sitt. Konan međ sýn sína. Ekki í mótsögn heldur ađeins ákveđiđ hugarfar. Og úr ţví spratt stundum sameining, umbreyting. Eftir ţađ fór ný hugsun ađ mótast um ţađ hvernig ríki ćtti ađ halda saman, ekki bara međ styrk, heldur međ einhvers konar sameiginlegri reisn.
Sérstakur pistill á Kirkjunetinu fjallar um tvö slík dćmi af konum sem stóđu á ţessum tímamótum. Ţar má sjá hvernig nćrvera, menning og orđ leiddi til ţess ađ leiđtogar fóru ađ leita nýrrar stefnu. Ekki međ hernađi heldur međ samtali.
[Heilagur Ágústínus frá Kantaraborg pistill á Kirkjunetinu](https://kirkjunet.blogspot.com/2025/05/heilagur-agustinus-fra-kantaraborg.html)