Laugardagur, 2.6.2007
Gömul húsgangsvísa úr Villingaholtshreppi
Í Flóanum, sunnlensku lágsveitunum finnast ýmsar gamlar heimildir og athyglisverđ fróđleiksbrot í munnlegri geymd sem skađi vćri ađ glata ađ fullu og öllu. Eitt ţeirra er vísa ţessi frá fyrri tíđ:
Sigga kerling sett var út af sakramenti
tíu ţó hún tíkum hlynnti
en tíđagerđum ekki sinnti.
Sigga ţessi á ađ hafa búiđ á býlinu Borg sunnan til í holtinu í Villingaholti. Ţetta býli er nú löngu komiđ í eyđi og líklega lítil ummerki eftir ţađ á yfirborđi jarđar. Gaman vćri ađ fá viđbrögđ viđ ţví hvort lesendur kannast viđ vísuna, eyđibýliđ sem hér er nefnt eđa hugsanlega frásagnir eđa fleiri vísubrot af Siggu ţessari.
Athugasemdir
Mćtur hef ég af kveđskap af ţessu tagi. Hér ţykir mér vel kveđiđ! Ekki ţekki ég til Siggu ţessarar. Langafi minn fluttist vestur yfir heiđi fyrir hálfri annarri öld en mjög lengi áđur voru ćttir mínar í Flóanum og víđa um Suđurland. Ţannig er ég tíundi mađur í beinan karllegg frá séra Jóni Egilssyni annálaritara í Hrepphólum, bróđur séra Ólafs í Ofanleiti í Vestmannaeyjum, ţess er herleiddur var - ef hvarvetna er rétt feđrađ ...
Hlynur Ţór Magnússon, 2.6.2007 kl. 09:07
Takk fyrir innlitiđ Hlynur. Já, ţessi fróđleikur er oft skemmtilegur og hann getur líka varpađ dálitlu ljósbroti á samfélagiđ sem var. Mig langar í ţví sambandi ađ benda áhugasömum á ađ frćđimađurinn og fyrrum bóndinn Helgi Ívarsson frá Hólum í Stokkseyrarhreppi hefur ritađ sérlega áhugaverđa og skemmtilega pistla međ ţjóđlegum fróđleik sem tengist lágsveitum Árnessýslu í Sunnlenska fréttablađiđ núna undanfarin misseri. Ţessir pistlar hafa ekki birst áđur eđa annars stađar svo ég viti.
Ragnar Geir Brynjólfsson, 2.6.2007 kl. 10:29
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.