Varhugavert að stefna á forréttindi auðmanna

Ef leggja á mælikvarða á það hverjir ættu að fá ríkisborgararétt aðrir en þeir sem uppfylla eðlileg skilyrði, þá ætti sá kvarði ekki að vera efnahagslegur.  Auðgildið á ekki að vera í öndvegi heldur jákvæð gildi menningarinnar á borð við mannúð, manngildi, þekkingu, atorku, fjölbreytni, samhjálp eða upplýsingu. Hætt er við að réttlætiskennd margra verði misboðið ef auðgildinu verður hampað og samasemmerki sett milli auðs og forréttinda.

Íslenskir ríkisborgarar frá upprunalandi utan Evrópu þurfa að sætta sig við að landið er lokað fyrir ættingjum þeirra s.s. börnum á lögaldri fæddum erlendis. Jafnvel þó að atvinna væri í boði þá njóta Evrópubúar forgangs að henni.  Hætt er við að réttlætiskennd þessa fólks verði misboðið og íslensk sjálfsmynd þeirra skaddist ef auðmenn fá að kaupa ríkisfang. Einnig er athugunarefni hvort forréttindi fárra standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Annað hvort sætta menn sig við reglur um ríkisborgara rétt á Íslandi eða þeir dæma sig sjálfir óhæfa.

Hrólfur Þ Hraundal, 1.4.2011 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband