Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
Miðvikudagur, 11.6.2008
Salzburgarnautið
Salzburgarnautið eða Salzburg Stier er heiti á hljómpípuorgeli sem geymt er í kastalanum í Salzburg, nánar tiltekið Hohensalzburg virkinu stærsta kastalavirki í Evrópu sem gnæfir í meira en 100 metra hæð yfir borginni og sem byrjað var að byggja á 11. öld. Það var erkibiskupinn í Salzburg, Leonard von Keutschach sem jafnframt var hertogi og stjórnandi Salsburgar sem í þá tíð var sjálfstætt hertogadæmi sem lét byggja Salzburgarnautið árið 1502 til að nota það sem klukku og sírenu fyrir borgina. Til að byrja með gat orgelið aðeins gefið frá sér fáa hljóma og þegar þeir glumdu minnti hljómurinn á nautsbaul. Salzborgarar voru því fljótlega farnir að kalla spilverkið í kastalanum 'nautið'. Frá árinu 1502 hefur nautið baulað þrisvar á dag til að gefa borgarbúum til kynna hvað tímanum líður. Fyrir 500 ára afmælið árið 2002 var nautið tekið í gegn og lagfært.
Á þessum tíma hefur nautið þróast talsvert frá því að geta spilað fá tóna yfir í að geta spilað lög. Meðal þeirra sem sömdu lög fyrir Salzburgarnautið var Leopold Mozart faðir Wolfgangs Amadesusar Mozart. Hann endurbætti nautið þannig að hægt var að koma tólf lögum fyrir á tromlunni sem stjórnar spilverkinu og því var hægt að skipta um lag sem nautið spilaði fyrir hvern mánuð ársins.
Nýlega var ég á ferðalagi á þessum slóðum og á skoðunarferð um kastalann var stöðvað við lítinn glugga þar sem hægt var að sjá inn í herbergi nautsins. Ég varð svo hissa yfir því sem ég sá að ég steingleymdi að taka mynd en þetta var eins og að horfa á risavaxna spiladós. Þarna var tromla sem pinnar gengu út úr rétt eins og í litlum spiladósum nema þessi var mjög stór. Á netinu fann ég að tromlan er 5 fet og 7 tommur á lengd og 9,8 tommur í þvermál! Hljómurinn kemur frá orgelpípum sem eru um meter á hæð það mesta. Ekki heyrði ég í nautinu í þetta skiptið en kannski verður það síðar. Gaman væri ef einhver lesenda þessara orða hefur heyrt í því hljóðið. Frá árinu 1997 hefur Salzburgarnautið verið á heimsminjaskrá UNESCO.
Heimildir:
http://www.salzstier.com/
http://www.salzstier.com/stierpics.htm
Menning og listir | Breytt 12.6.2008 kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 9.6.2008
Að upplifa sterkan jarðskjálfta
Ég lýsti í þessari bloggfærslu hér hvernig tilfinningu ég fékk fyrir jarðskjálftanum 28. maí sl. Þar minntist ég á titring og veltu. Fyrsta tilfinningin er eins og ef jarðvegsþjöppu sé snúið við og maður standi á þjöppuplötunni. Við þannig aðstæður finnst mikill titringur, en jafnframt er vægari tilfinning fyrir bylgjuhreyfingu í jörðinni. Á meðan titringurinn ríður yfir er eins og í gegnum jörðina fari með miklum hraða lág bylgja sem orsakar yfirborðshreyfingu líkt og aðrar bylgjur. Þaðan kemur sú tilfinning að maður sé ekki staddur í húsi heldur skipi.
Við þessar kringumstæður er líklega öruggast að gera minnst annað en að standa kyrr og að reyna að vara sig á fallandi hlutum. Að reyna að komast út úr húsi getur að líkindum haft ýmsa hættu í för með sér vegna fáts og óðagots. Þetta verður fólk þó að meta sjálft m.t.t. aðstæðna því auðvitað er hugsanlegt að hús hrynji þó líkur á því séu ekki miklar a.m.k. ekki hér á Íslandi. En dæmin um skólahúsin sem hrundu í jarðskjálftunum í Kína sýna því miður að allt getur gerst.
Vísindi og fræði | Breytt 12.6.2008 kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)