Stórhættuleg lasertæki

Ekki veit ég um neinn hagnýtan tilgang með svona öflugum lasertækjum og ekki er þetta til sölu vegna þess að það sé notað í sporti, líkt og haglabyssur t.d.  Ef þörf er á þessu vegna vísindarannsókna eða framkvæmda af einhverju tagi þá þurfa að gilda strangar reglur um meðhöndlun, t.d. eins og gilda um meðferð sprengiefna. Það er ótrúlegt að hver sem er geti keypt þetta í búð. Umsvifalaust ætti að banna alla sölu á þessu í sölubúðum til almennings en ekki bíða eftir því að ráðamenn í Brussel skipi okkur það „að ofan“.

En svona var það t.d. þegar radíum kom fyrst fram. Þá var fljótlega hægt að kaupa geislavirkan radíumelixír til inntöku! Það er eins og við áttum okkur ekki alveg hvað við erum með í höndunum þegar við fáum eitthvað nýtt og getum ekki séð afleiðingarnar fyrir. 


mbl.is Flugmaður missti sjónina tímabundi vegna leysigeisla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)

Við í Stjörnuskoðunarfélaginu notum grænan leysigeisla til að benda fólki á stjörnur og stjörnumerki þegar við tökum hópa í stjörnuskoðun. Þetta er þess vegna notað í sporti og hefur þar hagnýtan tilgang. Þeir geislar sem við notum eru 5mW en alls ekki sterkari og eru því ekki mjög bjartir.

TIlgangurinn með notkun okkar á leysigeislanum er að fræða fólk um himinninn. Það yrði okkur því talsvert tjón ef þetta yrði bannað vegna örfárra bjána sem kunna ekki með þetta að fara.

- Sævar Helgi Bragason

Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 13.11.2010 kl. 11:50

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef þetta getur valdið lífshættu er það tjón sem stjörnuskoðunarmenn verða fyrir ansi léttvægt þó það verði bannað.

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.11.2010 kl. 12:44

3 identicon

Ég hef fengið svona geisla í augun þar sem ég stóð við eldhúsvaskinn heima hjá mér. Það var einn ungur drengur hér í húsinu á móti mér að leika sér. Verð að viðurkenna ég var nokkra daga að ná fyrri sjón. Þessi ljós svíða langt inn í haus. Vegalegndin frá stofuglugga unglingsins inní eldhúsglugga hjá mér er 50 metrar ég bý í Laugarnesinu. Þetta eru hættuleg leiktæki þegar þeim er beitt svona. Já það væri slæmt ef þeir sem hafa almennileg not af svona ljósum tapi þeim vegna ör fárra bjána sem ekki kunna með þau að fara. Gs.

Guðlaugur (IP-tala skráð) 13.11.2010 kl. 12:48

4 Smámynd: Ragnar Geir Brynjólfsson

Takk fyrir innlitið Sævar.

Ég bendi þér að horfa á fréttir RÚV frá í gær en þar var einmitt fjallað um þetta mál. Litlir bendileysar eru ekki skaðlegir og mörg dæmi eru um gagnsemi þeirra, m.a. meðal þetta sem þú nefnir.  Það sem er hér til umræðu eru sterku bendarnir.

Ragnar Geir Brynjólfsson, 13.11.2010 kl. 12:49

5 Smámynd: Ragnar Geir Brynjólfsson

Takk fyrir innlitið Sigurður.

Ég bendi á fróðlega og áðurnefnda frétt á RÚV frá í gær hérna:

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4547160/2010/11/12/3/

Þar kemur fram að litlu bendarnir eru ekki skaðlegir en sterku bendarnir eru það. 

Ragnar Geir Brynjólfsson, 13.11.2010 kl. 12:50

6 Smámynd: Ragnar Geir Brynjólfsson

Takk fyrir innlitið og athugasemdina Guðlaugur.

Ragnar Geir Brynjólfsson, 13.11.2010 kl. 12:53

7 Smámynd: Einar Steinsson

Geta menn ekki verið sammála um að þetta á ekki að vera í höndunum á börnum.

Einar Steinsson, 15.11.2010 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband